Fyrirlestrar
Boðið er upp á fyrirlestra í Listmeðferð Unnar, fyrir einstaklinga, starfsfólk stofnana, félagasamtök og ýmiss konar hópa. Fyrirlestrarnir eru fluttir í Listmeðferð Unnar og á öðrum stöðum eftir óskum hverju sinni. Einnig er boðið uppá fjarfyrirlestra í gegnum veraldarvefinn.
Fyrirlestrar á döfinni:
- Processing Emotions and Memorising Coursework through Memory Drawing - Fjarfyrirlestur - enska
- Unnið úr tilfinningum og námsefni lagt á minnið með minnisteikningu - Reykjavík - íslenska
Vinsamlegast hafið samband með tölvupósti á netfangið unnur@unnurarttherapy.is til að fá frekari upplýsingar.
Listmeðferð – grunnfyrirlestrar I og II
Grunnfyrirlestur I: Hvað er listmeðferð?
Grunnfyrirlestur II: Listmeðferð og sköpunargleði
Í fyrirlestrunum er fjallað um grunnþætti listmeðferðar og tekin eru dæmi sem veita innsýn í aðferðir og hugmyndafræði meðferðarinnar. Þátttakendum sem þess óska er boðið að taka þátt í einföldu skapandi verkefni og öðlast þannig brot af þeirri reynslu og möguleikum sem listmeðferðin býður upp á. Ekki er gerð krafa um fyrri þekkingu eða reynslu af listsköpun. Fyrirlestrarnir eru ætlaðir öllum sem hafa áhuga á listmeðferð.