Listmeðferð Unnar

Fyrirlestur – Minnistækni og úrvinnsla tilfinninga

Minnistækni og úrvinnsla tilfinninga

Dr. Unnur Guðrún Óttarsdóttir listmeðferðarfræðingur flytur fyrirlesturinn „Unnið úr tilfinningum og námsefni lagt á minnið með minnisteikningum” í Reykjavíkur Akademíunni í lok nóvember. Tilefnið er niðurstöður minnisteiknunarrannsóknar sem birtar voru nýlega í tímaritinu ATOL: Art Therapy Online.

Minnistækni og úrvinnsla tilfinninga

Rannsóknin var framkvæmd í tveimur hlutum. 134 þátttakendur tóku þátt í þeim hluta rannsóknarinnar þar sem áhrif teikninga og orða á minni voru borin saman. Sumir þátttakendurnir rifjuðu upp orðin og teikningarnar þremur vikum eftir upphaflegu minnisæfinguna og aðrir rifjuðu upp níu vikum seinna. Rannsóknin sýndi fram á að teikning er áhrifarík minnistækni þegar til langs tíma er litið. Þátttakendurnir mundu að jafnaði fimm sinnum fleiri myndir sem þeir höfðu teiknað heldur en orð sem þeir höfðu skrifað níu vikum áður. Í öðrum hluta rannsóknarinnar var sjónum beint að því hvernig minnisteikningar geta auðveldað fólki úrvinnslu tilfinninga samhliða námi. Rannsóknin er sett í samhengi við þekktar aðferðir, kenningar og rannsóknir af svipuðum meiði. Áhorfendum er boðið að taka þátt í teikningar- og skrifæfingu sem skýrir hvernig hluti rannsóknarinnar var framkvæmdur. Æfingin veitir persónulega innsýn í það hvernig teikning og skrif hafa áhrif á minni. Rannsókn á minni og teikningu sem nær yfir svo langan tíma hefur eftir því sem best er vitað ekki verið gerð áður í heiminum.

Ýtarlegar upplýsingar um minnisteikningarrannsóknina má finna í grein Unnar Óttarsdóttur, „Processing Emotions and Memorising Coursework through Memory Drawing“ (ísl. „Unnið úr tilfinningum og námsefni lagt á minnið með minnisteikningum”) sem birt var 2018 í tímaritinu ATOL: Art Therapy OnLine.

Unnur mun flytja fyrirlestur um niðurstöður ransóknarinnar í Reykjavíkur Akademíunni, Þórunnartúni 2/Skúlatúni 2, 4. hæð á eftirfarandi dögum:

Laugardag 24. nóvember 2018 kl. 15:00-17:00

Þriðjudag 27. nóvember kl. 2018 12:00-14:00

Fimmtudag 29. nóvember 2018 kl. 17:00-19:00

Aðgangur er ókeypis en sætafjöldi takmarkaður og því nauðsynlegt að skrá sig hér.

Vinsamlegast skráið hjá ykkur þann dag og tíma sem valinn er.

Höfundaréttur © 2022 · Allur réttur áskilin · Óheimilt er að nota efni síðunnar án leyfis.
cartmagnifierchevron-down linkedin facebook pinterest youtube rss twitter instagram facebook-blank rss-blank linkedin-blank pinterest youtube twitter instagram