Staðsetning námskeiða
Boðið er upp á fjölbreytt námskeið í Listmeðferð Unnar. Staðsetning námskeiðanna fer eftir þörfum hvers og eins, til dæmis í Listmeðferð Unnar, fyrirtækjum, stofnunum eða á öðrum stöðum eftir því sem hentar. Námskeiðin fara einnig fram í listkennsludeild Listaháskóla Íslands og við Símenntun Háskólans á Akureyri. Einnig er boðið uppá fjarnámskeið í gegnum veraldarvefinn. Vinsamlegast hafið samband með tölvupósti á netfangið unnur@unnurarttherapy.is til að fá frekari upplýsingar.
Námskeiðin fela í sér
Námskeiðin byggjast á fyrirlestrum, umræðum og vinnustofum þar sem þátttakendur taka þátt í sköpunarferli og upplifa þá möguleika sem það veitir. Miðlað er þekkingu um kenningar og aðferðir listmeðferðar. Hvorki er gerð krafa um fyrri reynslu né þekkingu af listsköpun. Sköpunarferlið gefur þátttakendum tækifæri til sjálfstjáningar, eflir sjálfsþekkingu og eykur persónulegt innsæi sem hvetur til jákvæðra breytinga. Í nemendahópnum skapast tækifæri til að deila reynslu, tilfinningum og hugsunum ásamt því að upplifa samkennd og öðlast nýja sýn á eigin viðfangsefni.
Námskeið í boði:
Inngangur að listmeðferð I
Langar þig að efla sköpunargáfu þína og skjólstæðinga þinna? Viltu skilja hvernig hugsanir og tilfinningar eru tjáðar með listsköpun? Óskar þú eftir að afla þér upplýsinga um hvernig mögulegt er að auka styrk og bæta líðan með myndsköpun? Langar þig að auka skilning þinn og þekkingu á myndmáli? Fyrir hverja er námskeiðið? Námskeiðið er ætlað […]
Lesa meira
Grunnnámskeið II - Grunnhugtök, aðferðir og kenningar listmeðferðar
Námskeiðið byggir á og dýpkar þá þekkingu sem miðlað er á Grunnnámskeiði I – Hvað er listmeðferð? Á námskeiðinu er gefin innsýn í aðdraganda, áhrifaþætti, uppruna og sögu listmeðferðar. Námskeiðið byggist upp á fyrirlestrum, lestri, verkefnavinnu, umræðum og vinnustofum þar sem þátttakendur upplifa persónulegt sköpunarferli og þá möguleika sem það veitir í tengslum við hugtök […]
Lesa meira
Listmeðferð í námi I
Á námskeiðinu öðlast nemendur innsýn í kenningar og aðferðir listmeðferðar í gegnum fyrirlestra, lestur, skrifleg verkefni, umræður og vinnustofur þar sem nemendur taka þátt í sköpunarferli og upplifa þá möguleika sem það býður upp á. Á námskeiðinu eru kynntar myndsköpunaraðferðir sem efla sköpunargáfu, styrkja sjálfsmynd, mynda tengsl, auka félagsfærni, efla sjálfsþekkingu og bæta líðan. Þekking […]
Lesa meira
Listmeðferð í námi II
Á námskeiðinu öðlast nemendur innsýn í kenningar og aðferðir listmeðferðar í námi í gegnum fyrirlestra, lestur, skrifleg verkefni, umræður og vinnustofur þar sem nemendur taka þátt í sköpunarferli og upplifa þá möguleika sem það veitir. Þekking á eigin myndmáli eykur sjálfsmeðvitund og möguleika á að koma öðrum til hjálpar. Á námskeiðinu eru kynntar myndsköpunaraðferðir sem […]
Lesa meira
Listmeðferð fyrir fólk sem hefur orðið fyrir áföllum
Á námskeiðinu öðlast nemendur innsýn í þætti listmeðferðar sem ætluð er fyrir fólk sem hefur orðið fyrir áföllum. Á námskeiðinu er meðal annars fjallað um dæmi úr listmeðferð sem lýsir því hvernig sköpun innan meðferðarsambands í listmeðferð getur hjálpað fólki að öðlast styrk, lífsgleði og von þrátt fyrir erfitt áfall. Námskeiðið byggist upp á fyrirlestrum, […]
Lesa meira
Námskeið - Minnissmiðja
Langar þig að lifa í sátt við minningar þínar og lífsreynslu? Viltu muna atvik sem hafa gleymst? Óskar þú eftir að komast í dýpri snertingu við sjálfa þig og minningar þínar? Viltu sættast við að hafa gleymt? Úrvinnsla minninga og jafnvel sátt við að muna ekki getur leyst úr læðingi orku til að halda lífinu […]
Lesa meira