Unni Óttarsdóttur var boðið í viðtal hjá Ásdísi Olsen á Rauða borðinu á Samstöðinni og fjölluðu þær um störf hennar og rannsóknir á sviði listmeðferðar, minnis, teikninga, námslistmeðferðar og myndlistar.
Unnur sagði frá reynslu sinni af því að vinna með börnum sem glíma við námsörðugleika eða hafa orðið fyrir áföllum. Þær ræddu hversu miklu máli það gæti skipt að börn fengju að skapa á eigin forsendum og fyndu að á þau væri hlustað. Unnur lýsti einnig hvernig hún hefði fléttað saman vinnu með tilfinningar og viðfangsefni úr námi barnanna í námslistmeðferð.
Unnur sagði frá rannsóknum sínum á teikningu og minni með 134 börnum sem mundu að jafnaði 5 sinnum fleiri teiknuð orð en skrifuð 9 vikum eftir að þau lögðu þau á minnið. Í rannsókn þar sem 262 fullorðnir einstaklingar og börnin 134 tóku þátt og borið var saman minni á teiknuðum og skrifuðum orðum fyrir einstaklinga með mismunandi getu til að muna skrifuð orð. Rannsóknin gaf til kynna að einstaklingar með gott minni muna enn betur til langs tíma með því að teikna og að einstaklingar sem eiga erfitt með að muna skrifuð orð eiga að jafnaði miklu betra með að muna orðin, bæði til skemmri og lengri tíma, með því að teikna merkingu þeirra. Nánari upplýsingar um rannsóknina er að finna í greinum sem komu út hjá Education Siences, ATOL: Art Therapy OnLine og í bókarkafla sem kom út hjá Routledge.
Undir lok viðtalsins barst talið að því hvernig myndlist og listmeðferð mætast í þátttökuverkum Unnar.
Í viðtalinu kom fram að Unnur er brautryðjandi á alþjóðavettvangi í þróun á sviði námslistmeðferðar og áhrifa teikningar á minni. Í rannsóknum sínum beinir hún sjónum að því hvernig fólk lærir, man og tjáir sig á ólíkan hátt. Hún leggur áherslu á að aukinn skilningur á þessum fjölbreytileika geti haft víðtæk áhrif á framtíð menntunar og skapað svigrúm til að þróa kennsluaðferðir sem mæta betur ólíkum þörfum nemenda.