
Kafli eftir Unni Guðrúnu Óttarsdóttur, „Memory Drawing for Children who have Experienced stress and/or Trauma and have Specific Learning Difficulties", er kominn út í bókinni Memory: Shaping Connections in the Arts Therapies (ritstj. M. Cao, R. Hougham og S. Scoble). Bókin er gefin út af Routledge.
Í kaflanum er fjallað um minnisteikningu, sem er liður í námslistmeðferð. Markmið rannsóknarinnar var að þróa og prófa meðferðaraðferð sem styður tilfinningalega velferð og nám barna sem hafa upplifað álag og/eða áföll og glíma við sértæka námsörðugleika, til dæmis í lestri, stafsetningu, málfræði og stærðfræði, auk þess að muna námsefni.
Fimm börn tóku þátt í tilviksrannsókn og var rannsóknaraðferð grundaðrar kenningar notuð til að móta frumkenningu um aðferðina. Í kaflanum eru sýndar teikningar eins barnanna. Þær gefa til kynna hvernig mögulegt er að vinna úr viðkvæmum tilfinningum tengdum erfiðum minningum með minnisteikningu og leggja um leið námsefni á minnið.
Vísbendingar komu fram um að samþætting meðferðar og náms í minnisteikningu geti hjálpað bæði við úrvinnslu og utanumhald tilfinninga og við að muna námsefni. Niðurstöðurnar nýtast listmeðferðarfræðingum í skólum sem vilja nýta minnisteikningu í starfi sínu.
Read the chapter at Taylor & Francis
Tilvísun: Óttarsdóttir, U. G. (2024). Memory Drawing for Children who have Experienced stress and/or Trauma and have Specific Learning Difficulties. Í M. Cao, R. Hougham og S. Scoble (ritstj.), Memory: Shaping Connections in the Arts Therapies (bls. 118-141). Oxfordshire: Routledge.