Listmeðferð Unnar

Pallborð í Hannesarholti: Listir, íþróttir og tómstundir sem forvörn og endurhæfing

Unnur Óttarsdóttir frá Listmeðferð Unnar tók þátt í pallborðsumræðum í Hannesarholti um það hvernig hægt er að styðja börn og ungmenni sem hafa leiðst út á hála braut, hvort sem það er í átt að fíkniefnum, öfgahugmyndafræði eða andfélagslegri hegðun.

Börn og ungmenni í þeirri stöðu þurfa oft meira en hefðbundna meðferð. Rannsóknir og reynsla sýna að list, íþróttir og tómstundir geta verið lykillinn, ekki aðeins sem forvörn heldur einnig sem öflug endurhæfingarleið. Þegar ungmenni fá tækifæri til að skapa, læra, tengjast og hreyfa sig í öruggu og uppbyggilegu umhverfi eflist sjálfsmynd þeirra og sjálfsvirðing og þau fara að sjá nýja möguleika.

Með Unni í pallborði sátu Jakob Frímann Þorsteinsson, lektor við Menntavísindasvið, og Margrét Kristín Sigurðardóttir, listamaður og kennari. Guðrún Sóley Gestsdóttir stýrði umræðunum. Fundurinn var styrktur af Hannesarholti og Reykjavíkurborg.

Unnur þakkar Hannesarholti fyrir boðið og fyrir að fóstra umræðu um málefni ungs fólks, og Guðrúnu Sóleyju fyrir að stýra umræðunni af innsæi og skörpum hug.

Umræðunum var streymt og upptaka er aðgengileg hér:

Höfundaréttur © 2025 Listmeðferð Unnar · Allur réttur áskilin · Óheimilt er að nota efni síðunnar án leyfis.
cartmagnifierchevron-down linkedin facebook pinterest youtube rss twitter instagram facebook-blank rss-blank linkedin-blank pinterest youtube twitter instagram