Listmeðferð Unnar

Unnur Óttarsdóttir kynnti spegil samteikningu á AATA-ráðstefnunni í Charlotte

Unnur Óttarsdóttir flutti erindi um spegil samteikningu í listmeðferð og á söfnum á ráðstefnu Félags listmeðferðarfræðinga í Bandaríkjunum (AATA) í Charlotte í Norður-Karólínu. Í erindinu kynnti hún aðferðina og fjallaði um hvernig hún getur stutt við tengslamyndun, samkennd og óyrt samskipti.

Þátttakendur fengu að kynnast aðferðinni í u.þ.b. tíu mínútna verklegri æfingu. Að henni lokinni deildu þátttakendur reynslu sinni af teikningunni og erindinu.

Ummæli þátttakenda

„Á meðan og eftir teikninguna fann ég fyrir gleði, því þetta var skemmtilegt, næstum eins og leikur. Þetta er frábær leið til að brjóta ísinn.“

— Angela Hawkins

„Áður en ég byrjaði var ég þreytt, en eftir á fannst mér ég vera meira vakandi og virkari.“

— Abigail Anderton

„Þetta var góður og áhugaverður fyrirlestur. Fyrirlesarinn kom fram sem einstaklingur sem hefur mikla ástríðu fyrir listmeðferð og brennandi áhuga á að rannsaka hana, þróa og víkka út möguleika hennar.“

— Nafnlaus þátttakandi

„Tengslin mynduðust ekki aðeins í gegnum myndlistarefnið heldur einnig í gegnum nærveruna. Áður en við byrjuðum var ég svolítið þreytt en áhugasöm. Eftir á fann ég fyrir meiri orku, gleði og ró.“

— Anna Popham

„Eftir spegil samteikninguna fann ég fyrir meiri innblæstri, aukinni orku og gleði. Takk kærlega fyrir allt!“

— Nafnlaus þátttakandi

„Eftir spegil samteikninguna fann ég fyrir sterkari tengslum. Nú þekki ég manneskju sem ég þekkti ekki áður.“

— Carrie Bridges

„Eftir spegil samteikninguna fann ég að öndunin varð dýpri og ég var opnari gagnvart hinum einstaklingnum.“

— Nafnlaus þátttakandi

Höfundaréttur © 2025 Listmeðferð Unnar · Allur réttur áskilin · Óheimilt er að nota efni síðunnar án leyfis.
cartmagnifierchevron-down linkedin facebook pinterest youtube rss twitter instagram facebook-blank rss-blank linkedin-blank pinterest youtube twitter instagram