
Kafli eftir Unni Guðrúnu Óttarsdóttur listmeðferðarfræðing hefur birst í The Routledge International Handbook of Art Therapy Practice. Kaflinn ber heitið „Joint mirror drawing and crossdrawing in art therapy and museums“ og fjallar um tvær teikniaðferðir sem Unnur hefur þróað, spegil samteikningu og krossteikningu.
Í spegil samteikningu teikna þátttakendur saman og bregðast við línum og hreyfingum hvert annars. Unnur fjallar um hvernig slíkt samspil getur stutt við tengslamyndun, samkennd og óyrt samskipti. Hún skoðar einnig hvernig nýta má aðferðirnar í listmeðferð og á söfnum, þar sem gestir fá tækifæri til að taka virkan þátt í sameiginlegu sköpunarferli.
Kaflinn er á blaðsíðum 261–274. Ritstjórar handbókarinnar eru Margaret Hills de Zárate, Diane Waller og Claire Louise Vaculik.
Nánar um bókina á vef Routledge
Óttarsdóttir, U. G. (2025) Joint mirror drawing and crossdrawing in art therapy and museums. Í: M. H. de Zárate, D. Waller and C-L. Vaculik (ritstj.) (bls. 261-274). The Routledge International Handbook of Art Therapy Practice. New York: Routledge.